Þeir hafa nú alltaf haft fullan rétt á að verja sig eða hvað?
8.10.2023 | 03:46
Ég átta mig ekki alveg á því afhverju þessi stuðningsyfirlýsing kemur alltaf upp því að ég hef bara aldrei heyrt talað um kröfur þess efnis neinsstaðar að Ísraelsmenn eigi ekki að hafa fullan rétt á að verja sig. Alveg stórundarlegt nema kannski auðvitað að þegar svo vörnin snýst í sókn og verður að allsherjar slátrun á íbúum Gaza þá þurfi að verja hana með einhverjum slíkum yfirlýsingum. Það er kannski það sem er líklegast.
En það er augljóst að það þarf að fara að taka á þessu aðskilnaðar vandamáli milli Palestínumanna sem búa á Gaza og Ísrael. Það má segja með réttu að núna hafi Palestínumenn sem þar búa verið að brjótast út úr fangelsinu því Gaza búðirnar eru gjörsamlega lokaðar frá umheiminum með háum múrum og allt sem fer þar inn eða út er undir stjórn Ísraela.
Þetta er stórt og mikið vandamál og það á eftir að versna mikið fyrir báða aðila eftir þetta.
Ég get ekki séð annað en að Ísrael annaðhvort neyðist að hertaka Gaza einsog það leggur sig en það er hægara sagt en gert.
Eitt er ljóst að á meðan Bandaríkin halda áfram að beita neitunarvaldi á alla gagnrýni á landtöku Ísraels á vettvangi Sameinuðu Þjóðanna þá verður ekkert annað en tortíming sem bíður fólksinns sem býr á Gaza því það kemst hvergi og það er orðið illa þrengt að því. Þetta á eftir að valda miklum hörmungum fyrir báðar þjóðirnar.
Segir Ísrael hafa fullan rétt til að verja sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá kvartar enginn yfir því ef þeir sleppa. Það er ekki eins hagkvæmt augljóslega vegna hægari vaxtar og annarra vandamála en hjálpar til þegar þeir sleppa. Ef þeir geta ræktað þúsundir tonna af eldilaxi afhverju ekki að taka sig til og rækta bara upp villta Íslenska laxastofninn á meðan hann er ennþá hreinn? Það ætti ekki að vera vandsmál með allar ræktunarstöðvarnar tilbúnar útum allt land.
Meira vælið alltaf.
Baulað á ráðherra á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)