3 hópar fólks, er hægt að fá þetta sundurliðað takk?
19.1.2022 | 13:41
Það þarf núna að fá gögn yfir hvað margir eru inni einungis vegna covid, hvað margir eru inni sem mældust með covid við innlögn vegna einhvers annars og hvað margir greindust við skimun á spítala. Þessa þrjá hópa þarf líka að sundurliða aftur í tíman til að sjá hvernig þessum tölum hefur háttað í gegnum faraldurinn.
Eru þeir sem greindust með covid við innlögn með einhver einkenni? Eru þeir sem að greindust með covid við reglulega skimun með einhver einkenni? Í hvað hópi eru þeir sem að eru á gjörgæslu og hvernig hefur þessu verið háttað frá upphafi?. Í hvaða hópi tilheyrðu þeir sem að dóu. Hvernig var heilsufarslegt ástand allra þeirra sem hafa verið lagðir inn vegna covid og þeirra sem hafa lent á gjörgæslu og þeirra sem hafa dáið?. Sprautustaða? Án þess að hafa þessar tölur er fólk illa upplýst um raunverulega smithættu af öllum þessum vírusum.
Var þá sprautun heilbrigðra barna með genameðferð óþörf? Hvað hafa mörg börn skaddast fyrir lífstíð? Hvað ætli margir foreldrar sjái eftir að hafa látið sprauta barnið sitt? Hverjar verða langtíma afleiðingar genameðferðanna á fólk almennt?
Og svona í lokin hvenær ætli Bill Gates komi nú með sprautuna einsog hann talað um árið 2010 sem að gæti fækkað mannkyni um 10 til 15%? Hann var bjartsýnn maður, hann fengi aldrei svona marga til að sprauta sig með þessu!
Vísar gagnrýni til föðurhúsanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.